 |
 |
 |
|
 |
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
 |
 |
| Mit Ihrem persönlichem Passwort gelangen Sie in den Stammgast-Bereich mit speziellen Features für unsere treuen Kunden |
 |
 |
 |
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
| |
| Deutsch Winter » SPRACHAUSWAHL » Homepage Island |
 |
Velkomin á Sonnberg-vefsetrið!
Á netinu eruð þið nú komin á einn af fjölbreytilegustu ferðamannastöðunum í Salzborgarhéraði í Austurríki. Það væri okkur mikil ánægja að mega á næstunni bjóða ykkur velkomin á sumardvalarstaðinn Sonnberg.
Fannhvítur vetur, endalaus háfjallageimur, víðáttumiklar skíðabrautir, sprellfjörugt snjókast, frumlegir og skondnir skíðaskálar... Hér í Salzborgar sportheiminum hefst vetrarfjörið skömmu fyrir jól og endar um páska. Með fjölmörgum ógleymanlegum sólarvikum, skínandi snjókristöllum og geislandi andlitum fólks sem er að slappa af og skemmta sér.
Ferðamannastaðurinn Sonnberg er friðsæll og unaðslegur en þó ekki nema steinsnar frá skíðalyftunum. Enda er leit að annarri eins vetrarparadís fyrir fjölskyldur með börn. Ef þið viljið hugsum við um og skemmtum smáfólkinu heima við, förum í skemmtilega leiki og hjálpum því að byggja snjókarla. Og litla skíðakappa förum við með í skíðaskólann hérna rétt við hliðina þar sem þeir fá allar óskir uppfylltar – og að áliðnum degi aftur heim.
Þið getið fullkomlega treyst okkur fyrir börnunum ykkar á meðan þið sjálf njótið lífsins á gönguskíðabrautum, í svigbrekkum eða á gönguvegum. Í Flachau-Reitdorf eru stórkostleg skíðasvæði með fullkomnum svifbrautum og stólaliftum. Þið getið valið milli skíðabrautanna í Flachau, Wagrain, St. Johann, Flachauwinkl, Zauchensee og Kleinarl. Og allar eru þær innan seilingar frá dvalarstaðnum, Sonnberg.
Sonnbergfrí er afslöppun fyrir alla fjölskylduna. Þetta er enginn persónulegur dómur okkar sjálfra, heldur höfum við þetta eftir öllum þeim fjölmörgu gestum sem ekki gátu leynt hrifningu sinni. Og mikið væri nú gaman ef við fengjum líka að bjóða ykkur velkomin í Sonnberg frí!
Meðal annarra orða:
Vefsetrið okkar getið þið lesið á ensku eða á þýsku eftir vali.
Vinsamlegast látið okkur vita hvort þið viljið frekar að við svörum fyrirspurn ykkar eða pöntun á ensku eða á þýsku.
Hjartanlegar þakkir fyrir heimsóknina á netinu. Sæl að sinni og sjáumst næst í Sonnberg!
Bestu kveðjur frá fjölskyldunni Witting í Flachau-Reitdorf í hinu undurfagra Salzborgarhéraði!
Póstáritun:
Familie Witting,
Sonnberg Ferienanlage
A-5542 Flachau / Reitdorf
Sími +43/(0)6457/2751
Fax +43/(0)6457/2151 info@sonnberg.com |
 |
|
| Top | Print | Send
a friend | Als Favorit
hinzufügen |
|
 |
 |
 |
 |
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
 |
 |
Machen Sie sich ein Bild über die Sonnberg Ferienanlage in Flachau-Reitdorf!  |
 |
 |
 |
 |
Aktuelle Fotos von unseren Gästekindern 
Sonnberg Ferienanlage und Umgebung  |
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
 |
 |
 |
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
 |
|